Ekta ítalskar kjötbollur með pastasósu

Home / Kjöt / Ekta ítalskar kjötbollur með pastasósu

Þessi er einn af uppáhalds réttum fjölskyldunnar og uppáhald allra sem á réttinum bragða hvort sem þeir eru ungir eða aldnir. Uppskriftin er ekki flókin en felur í sér örlítið dúllerí og frábært að fá sem flesta við borðið og hjálpa til við að móta kjötbollurnar, sem tekur þó enga stund og gera skemmtilega stemmningu úr þessu.

Ekta ítalskar kjötbollur
500 gr nautahakk
1 egg
1/4 bolli mjólk
1/2 bolli brauðrasp
1/2 tsk salt
1 tsk oregano
1 tsk steinselja
2 hvítlauksrif, smátt söxuð (eða 1/2 tsk hvítlaukssalt)
2 msk furuhnetur, smátt saxaðar
1/2 tsk pipar
1/4 bolli parmesan, rifinn

Aðferð

  1. Blandið öllum hráefnum saman varlega með höndunum.
  2. Mótið í kúlur.
  3. Látið kúlurnar detta varlega í vel heita pastasósu og lækkið svo hitann örlítið.
  4. Látið malla þar til kjötbollurnar eru fulleldaðar.
  5. Borið fram með spagetti og pastasósu (heimalagaðri eða aðkeyptri) og parmesan. Saltað og piprað eftir smekk.

Ekta ítölsk pastasósa
800 gr tómatpassata (maukaðir tómatar)
1 lítil dós tómatpúrre
1 hvítlauksrif
1/2 laukur, smátt saxaður
1 tsk basil (jafnvel mun meira ef fersk)
1 tsk sjávarsalt
1/4 tsk pipar
2 msk sykur
1/4 bolli ólífuolía
1/4 bolli parmesan

Aðferð

  1. Steikið í olíu lauk og hvítlauk í stórum potti.
  2. Bætið öllu hinu í pottinn og látið malla í um 15 mínútur.
  3. Stundum læt ég líka um eina msk af balsamikediki útí og það skemmir sko ekki.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.