Stifado Grikkja

Home / Kjöt / Stifado Grikkja

Það er fátt betra yfir vetrartímann en að fá sér góðan pottrétt. Stifado er grískur pottréttur sem inniheldur yfirleitt nauta- eða lambakjöt er orðinn ómissandi á heimilinu á þessum tíma. Hann er með mildum kryddum eins og kanil, múskati og rósmarín sem vinna vel saman og gefa réttinum einstaklega gott bragð. Eftir góðan tíma í ofni er kjötið lungnamjúkt og ljúffengt. Pottrétturinn er jafnvel enn betri daginn eftir þegar kjötið hefur fengið að liggja í góðan tíma í kryddblöndunni. Stifado hentar öllum aldurshópum og fellur sérstaklega vel í kramið hjá yngstu kynslóðinni. 2012-12-02 15.55.332012-12-02 16.48.592012-12-02 16.00.272012-12-02 18.30.52

Grískt Stifado
1 kg nauta- eða lambakjöt, skorið í teninga
500 g skarlottulaukar
1 stór laukur, skorinn smátt
1 stór mjúkur tómatur, niðurskorinn
170 g tómat púrra
1/2 tsk múskat
1 kanilstöng og 1 tsk kanill
4 hvítlauksrif, söxuð
1-2 grænmetisteningar
2 lárviðarlauf
2 stiklar rósmarín
1 lítið vínglas ólífuolía
1 glas rauðvín eða hvítvín
2 msk rauðvínsedik
salt og pipar

Aðferð

  1. Látið nautakjötið á stóra pönnu eða pott og eldið við háan hita. Hrærið reglulega í þar til kjötið hefur verið brúnað á öllum hliðum.
  2. Bætið út í ólífuolíunni, saxaða lauknum og hvítlauknum og steikið þetta í um 5 mínútur.
  3. Bætið út í víni og rauðvínsediki. Látið lok yfir og sjóðið í um 5 mínútur.
  4. Bætið því næst múskati, lárviðarlaufum, grænmetistening, kanil og kanilstöng, rósmarín stiklunum og slatta af svörtum pipar. Hrærið þessu saman við meðalhita og smakkið til með salti.
  5. Látið því næst tómatinn og tómat púrru í pottinn/pönnuna.
  6. Hellið þessu öllu út í pott eða fat með loki sem má fara í ofn.  Bætið út í 750 ml af vatni og setjið inní 200°c heitan ofn.
  7. Afhýðið skarlottulaukinn og steikið í smá olíu þar til mjúkur, en passið að þeir brenni ekki (eins og gerðist reyndar hjá mér).
  8. Bætið þeim út í pottréttinn og látið malla í ofni í amk. klukkutíma (eða 2-3). Bætið útí vatni ef þarf. Takið lokið af pottinum síðustu 20 mínúturnar og eldið þar til sósan hefur þykknað (gott að opna ofninn lítillega á meðan).
  9. Gott að bera fram með cous cous og grísku salati eða góðu brauði sem maður dýfir í sósuna.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.