Snjókornakonfekt

Home / Jólin / Snjókornakonfekt

Hér kemur eitt einstaklega fallegt og jólalegt nammi, konfektnammi með sykurpúðum, trönuberjum og hvítu súkkulaði. Það verður varla mikið amerískara en þetta! Ef þið finnið sykurpúða í bleikum lit er flott að blanda því saman við hvíta. Macademia hnetur fást léttsaltaðar í sumum matvöruverslunum og vel hægt að nota þær.

2012-12-08 11.28.28-2

Snjókornakonfekt
250 gr sykurpúðar (marsmellows),skornir í minni bita
110 gr þurrkuð trönuber
110 gr möndlur (eða macademia hnetur) gróft skornar
60 g pistasíuhnetur (má líka sleppa)
35 g kókosmjöl
450 gr hvítt súkkulaði

Aðferð

  1. Látið smjörpappír á um 20 cm ferkantað form og penslið smá olíu á.
  2. Blandið saman í skál, sykurpúðum, hnetum, trönuberjum og kókos. Látið súkkulaðið í glerskál og inní örbylgjuofn í um 1-2 mínútur. Opnið á 30 sek fresti og hrærið í blöndunni.
  3. Hellið súkkulaðinu yfir sykurpúðana og blandið vel saman. Hellið blöndunni í formið og þrýstið á blönduna með sleif.
  4. Látið í frystinn í um 2 tíma og skerið síðan í teninga með heitum hníf.

Leave your comment to Cancel Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.