Græna þruman

Home / Boozt & drykkir / Græna þruman

Það er við hæfi að byrja árið með trompi og með uppskrift að þessum gómsæta ávaxta- og grænmetishristingi. Grænu þrumuna í sinni upprunarlegu mynd getið keypt á veitingastaðnum Lifandi markaður og er hann einn vinælasti heilsudrykkurinn þar, enda alveg einstakur á bragðið. En það er líka gott að geta gripið í hann þegar maður er heima við og því kem ég hérna með uppskrift að svipuðum drykk.

2013-01-01 12.53.03Eitt glas á dag kemur skapinu í lag!

Græna þruman
1 grænt epli
bútur engifer, rifinn
lúka spínat
lúka rucola
1 mangó
nokkrar döðlur
hnífsoddur cayenne pipar
1 msk grænt duft – ph ion (má sleppa)
1 msk grænt te (má sleppa)
klaki
eplasafi eða vatn til þynningar

Aðferð
Allt látið í blandara og blandað vel saman. Sett í glas og notið! Drekkið einn daglega og finnið fyrir jákvæðum áhrifum sem þessi drykkur færir ykkur.

Leave your comment to Cancel Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.