Magnað mangó sorbet

Home / Eftirréttir & ís / Magnað mangó sorbet

Þetta er ísinn sem þið viljið vera að borða og bjóða upp á í sumar. Milt mangóbragð og fersk berjasósa gera þennan krapís gjörsamlega ómótstæðilegan. Hann er ofureinfaldur í gerð en gott að vinna sér hann í haginn áður en hans er notið, þar sem að hann þarf sinn frystitíma. Skellið í þennan og njótið!

2013-06-04 19.02.52 2013-06-04 19.03.05

Mangó krapís með brómberjasultu
4 stór mangó, fullþroskuð
300 g sykur
4-5 límónur (um 100 ml af límónusafa)
100 g frosin brómber (eða ber að eigin vali)
1 eggjahvíta (má sleppa)

Aðferð

  1. Látið 225 g af sykrinum í pott ásamt 250 ml af köldu vatni og hitið við vægan hita og hrærið af og til í blöndunni þar til sykurinn er uppleystur.
  2. Skerið mangóin niður í bita og látið í matvinnsluvél ásamt límónusafanum og maukið vel. Bætið þá kældri sykurblöndunni saman við og blandið saman í matvinnsluvélinni.
  3. Látið plastfilmu í 2 lítra form og hellið ísblöndunni í formið. Látið í frysti í amk. 6 klukkustundir.
  4. Látið berin í pott ásamt afganginum af sykrinum (75g) og 1 msk af vatni. Hitið varlega þar til berin eru orðin mjög mjúk.
  5. Setjið berin í sigti og merjið þau í gegnum sigtið. Hendið því sem ekki fer í gegn. Kælið berjamaukið.
  6. Þegar mangoísinn er frosinn takið hann úr frysti og skerið í bita. Látið þá síðan í matvinnsluvél og setjið vélina á “pulse” þar til mangoísinn er orðinn mjúkur og þéttur í sér. Þetta gæti tekið nokkrar mínútur. Bætið nú eggjahvítunni út í.
  7. Hellið helmingi af mangóísnum í formið. Hrærið í berjasósunni og hellið helmingnum af henni yfir ísinn. Látið því næst afganginn af ísnum í formið og hellið síðan berjasósunni yfir. Frystið í aðra 6 tíma.
  8. Takið ísinn úr frysti 10 mínútum áður en þið berið hann fram. Ísinn geymist í 1 mánuð í frysti.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.