Kókoskúlur í hollum búningi

Home / Eftirréttir & ís / Kókoskúlur í hollum búningi

Kókoskúlur gleðja unga sem aldna og það er fátt betra með kaffinu en kúla eða tvær. Þessar kókoskúlur eru mitt uppáhald!!! Þær eru mun hollari en þær sem við eigum að venjast og það besta er að krakkarnir elska þær líka. Einfaldari verður bakstur ekki og gott að eiga þessar frábæru kókoskúlur í ísskápnum þegar sykurþörfin gerir vart við sig. Algjört möst try!

2013-06-17 13.29.38

2013-06-17 13.26.12

Kókoskúlur í hollum búningi
1 bolli döðlur, lagðar í bleyti í 1 klst
1 bolli pekanhnetur, grófsaxaðar
1 tsk vanilludropar
1/2 tsk salt
1/2 bolli möndlusmjör
1/4 bolli kakóduft
vatn
kókosmjöl

Aðferð

  1. Látið í matvinnsluvél döðlur, pekanhnetur, vanilludropa, salt, möndlusmjör og kakóduft. Stillið matvinnsluvélina á pulse. Bætið út í 1-3 msk af vatni (eða meira ef þarf) þar til deigið er orðið að deigkúlu.
  2. Mótið kúlur úr deiginu og veltið upp úr kókosmjöli. Geymið í ísskáp.

Möndlusmjör er hægt að gera heima á einfaldan hátt. Látið um 150 g af möndlum í matvinnsluvél og bætið smá ólífuolíu saman við. Maukið í um 10 mínútur eða þar til möndlusmjör hefur myndast.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.