Ísréttur með hindberjum og karmellusósu

Home / Eftirréttir & ís / Ísréttur með hindberjum og karmellusósu

Ég hef sagt það áður og segi það aftur ég ELSKA rétti sem maður getur galdrað fram á núll einni og bragðast dásamlega. Hér er einn slíkur….já og enn eitt uppáhaldið. Það má leika sér með hráefnin og hér er ekkert heilagt. Frábær ísréttur í matarboðið eða kósýkvöld fjölskyldunnar.

2013-09-12 10.59.54

2013-09-12 11.05.26 Ísréttur með hindberjum og karmellusósu
1 – 1 1/2 l vanilluís
100 g hindber
karmellusósa
300 g grahams kex eða makkarónur
100  g smjör, brætt

  1. Látið smjörpappír í form.
  2. Myljið makkarónurnar niður (gott að nota matvinnsluvél) og blandið saman við smjörið. Takið um 50 g frá til að strá yfir ísinn í lokin en þrýstið hinu vel í formið.
  3. Leyfið ísnum aðeins að mýkjast og látið hann síðan yfir makkarónublönduna. Gott er að dreyfa úr honum með lítilli sleif.
  4. Dreifið karmellusósu yfir ísinn…ommmnooommmnommmm!
  5. Þrýstið berjunum vel ofan í ísinn og stráið jafnvel smá karmellusósu yfir þau. Ef þið viljið að þá getið þið hrært berin saman við ísinn þannig að það blandist lítillega saman.
  6. Látið að lokum afganginu af makkarónublöndunni sem þið tókuð frá yfir allt. Setjið filmu yfir formið og geymið í frysti í 3-5 klukkustundir áður en rétturinn er borinn fram og hans notið.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.