Kjúklingasalat í öllum regnbogans litum

Home / Fljótlegt / Kjúklingasalat í öllum regnbogans litum

Þetta kjúklingasalat er í miklu uppáhaldi hjá mér og það nægir í rauninni bara að horfa á það til að átta sig á því af hverju. Allir þessir fallegu litir komnir saman í matarmikla, næringarríka og ljúffenga máltíð. Reyndar svo ljúffenga að börnin borða þetta með allra bestu lyst, þó kannski sé fussað og sveiað áður en það er bragðað í fyrsta sinn. Í þessari uppskrift eru jarðaberin eiginlega möst en að öðru leyti getið þið leikið ykkur með hráefnin og magn og notað það sem til er í ísskápnum.

Einfalt og fljótlegt í gerð og svona máltíð sem getur bara ekki klikkað….ég tala nú ekki um ef þið eigið eins og eina vel kælda hvítvín(blikk,blikk).

IMG_8516 IMG_8520

Kjúklingasalat í öllum regnbogans litum
4 kjúklingabringur
kjúklingakrydd
bbq honey mustard sósa
1 poki klettasalat
1 askja kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
1 rauðlaukur
1/2 agúrka
1 Avocadó og/eða 1 mangó
100 g Ristaðar furuhnetur
1/2-1 krukka fetaostur (ekki setja olíuna með)
1 askja jarðaber
tortilla flögur

Salatdressing
1 dl olía
1/2 dl balsamic edik
1/2 dl dijon sinnep
1 dl hlynsíróp
1 hvítlauksgeiri, pressaður

  1. Skerið kjúklingabringurnar í litla munnbita og steiktið á pönnu. Kryddið með kjúklingakryddi og þegar kjötið hefur “lokast” er bbq sósunni hellt út á pönnuna og kjúklingurinn látinn malla í henni þar til hann er eldaður í gegn.
  2. Skerið grænmetið í hæfilega bita og raðið á disk.
  3. Hellið kjúklingum yfir og stráið ostinum og furuhnetunum yfir allt. Endið á muldum nachosflögum.
  4. Gerið sósuna með því að hræra öll hráefnin vel saman og berið hana fram með salatinu þannig að hver geti skammtað sér að vild.
  5. Tyggið vel og lengi og njótið matarins til hins ítrasta!

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.