Basilkjúklingur með hlynsýrópi og grilluðum fetaosti

Home / Fljótlegt / Basilkjúklingur með hlynsýrópi og grilluðum fetaosti

Þetta er með betri máltíðum sem ég hef bragðað í..tja að minnsta kosti nokkra klukkutíma. Kjúklingurinn marineraður í hlynsýrópi, gott basilpestó, tómatar og grillaður fetaostur gefa þessum rétti tíu stjörnur.

Ég er mikið farin að nota úrbeinuð kjúklingalæri og finnst þau vera góð tilbreyting frá kjúklingabringunum og gerði það í þessari uppskrift, bæði er þó afbragð. Rétturinn er dásamlega fljótlegur í gerð og tagliatelle og góðu salati er þetta hin fullkomna máltíð hvort sem er á virkum degi eða yfir helgi.

IMG_8719

 Dásamlegt basilpestó látið á kjúklingabitana..verið óhrædd að láta vel af pestói

IMG_8722

 Tómatsneiðum raðað yfir pestóið

IMG_8745

Fetaosti dreift yfir allt og látið inn í ofn

IMG_8751

Nýkomið úr ofni…hin fullkomna máltíð

IMG_8769

Borið fram hér með tagliatelle og góðu salati

Basilkjúklingur með hlynsírópi og grilluðum fetaosti
600 g kjúklingabringur, skinnlausar (eða úrbeinuð kjúklingalæri)
1 krukka fetaostur í olíu
4 tómatar, skornir í sneiðar
ca. 200 ml hlynsíróp
basilpestó, aðkeypt td. frá SACLA eða heimagert (sjá uppskrift að neðan)

  1. Hellið hlynsírópi í eldfast mót og setjið kjúklingabitana þar í. Sírópið ætti að ná ca. 2/3 upp á kjúklingabitana.
  2. Látið rúmlega 1 msk af grænu pestó á hvern kjúklingabita.
  3. Skerið tómatana í sneiðar og raðið yfir kjúklinginn.
  4. Hellið olíunni af fetaostinum frá og dreifið fetaostinum yfir kjúklinginn.
  5. Setjið í ofn við 200°c í um 40-50 mínútur eða þar til kjúklingurinn hefur eldast í gegn og fetaosturinn er orðinn gullinn

Heimagert basilpestó
50 g basilíka, stilkar fjarlægðir
2 hvítlauksrif
5 msk ólífuolía
3 msk furuhnetur
3 msk parmesanostur

  1. Öll hráefnin sett í matvinnsluvél/töfrasprota og maukað vel saman.

 

 

Leave your comment to Cancel Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.