15 mínútna súpan

Home / Fljótlegt / 15 mínútna súpan

Nú þegar tekur að kólna og dimma er fátt meira kósý en að gæða sér á bragðmikilli súpu við kertaljós. Þessi súpa tekur einungis um 15 mínútur í gerð, er ofurholl og hrikalega bragðgóð. Hægt er að leika sér með hana og nota þennan grunn en bæta út í því sem hugurinn girnist eins og til dæmis kjúklingi eða risarækjum svo eitthvað sé nefnt.

IMG_4391

 

Tælensk súpa á 15 mínútum
3 hvítlauksrif, söxuð
2 msk engifer, rifið
2 msk rautt karrý mauk, red curry paste frá Blue dragon
2 msk kókosolía
950 ml kjúklingasoð (eða vatn og 1-2 kjúklingateningar)
720 ml kókosmjólk
100-200 g hrísgrjónanúðlur, má sleppa
Til skreytingar
t.d. kóríander, chilí, eða vorlaukur

  1. Blandið saman hvítlauk, engifer og karrýmauki og maukið saman. Bætið kókosolíunni saman við og hrærið vel.
  2. Hellið karrýkókosmaukinu í stóran pott við og léttsteikið við meðalhita í 1-2 mínútur. Bætið þá kjúklingasoðinu saman við og síðan kókosmjólkinni. Kryddið með salti og pipar að eigin smekk.
  3. Ef þið notið hrísgrjónanúðlur látið þær liggja í heitu vatni og mýkjast og bætið þeim síðan saman við.
  4. Skreytið með kóríander, chilí og/eða vorlauk.
  5. Það er jafnframt hægt að bæta við kjúklingi eða risarækjum.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.