Hráfæðikaka með möndlubotni, súkkulaðikremi og hindberjum

Home / Eftirréttir & ís / Hráfæðikaka með möndlubotni, súkkulaðikremi og hindberjum

Hér er á ferðinni dásamlegur hráfæði eftirréttur sem vekur lukku og kátínu þess sem hann bragða enda er hann ekki einungis ótrúlega bragðgóður heldur líka svo fallegur og ekki skemmir það fyrir. Hann tekur stuttan tíma í gerð, en þið gætuð kannski staldrað við kókossmjörið. Ekki veit ég hvort það fáist í heilsubúðum á Íslandi en í raun er þetta bara kókos sem er maukaður í matvinnsluvél þar til hann er orðinn fljótandi þannig að það er nú ekki flókið. Eftirréttur sem vert er að prufa…og njóta.

 

IMG_8025

IMG_8026

 

Skref fyrir skref
1. Botninn látinn í formið
2. Súkkulaðikrem yfir
3. Hindber yfir kremið
4. Súkkulaðikrem yfir hindberin
5. Endað á hinberjum

IMG_7965 IMG_7974 IMG_7988 IMG_8026

 

 

IMG_8045

 

Hráfæðikaka með möndlubotni, súkkulaðikremi og hindberjum
Botn

70 g möndlur, fínmalaðar (í matvinnsluvél)
2 msk kakó
1 msk kókosolía
1 msk agave síróp

Blandið öllum hráefnunum vel saman.

Súkkulaðikrem
60 g kakó
118 ml agave síróp
50 g kókossmjör (ath ekki kókosolía)*

Blandið öllum hráefnunum vel saman.

Setjið saman
Hindber, ég notaði frosin enda mun ódýrari
Botni
Súkkulaðikremi

  1. Setjið botninn í form og þrýstið þétt niður.
  2. Hellið þunnu lagi af súkkulaðikreminu yfir botninn. Raðið hindberjum ofaná og hellið síðan ríflegu magni af súkkulaðikreminu yfir hindberin. Endið á að raða hinberjum yfir allt og þrýstið þeim aðeins niður í súkkulaðikremið. Geymið í kæli í amk. 3 tíma áður en kakan er borin fram.Ég lét svo smá síróp yfir í lokin.

    Athugið að uppskriftin miðast við eitt hringlaga form með 7-8 cm í þvermál. Ég nota hinsvegar plastglas sem ég klippi botninn úr og þannig næ ég að gera 2-3 kökur. Að sjálfsögðu hægt að leika sér aðeins með þetta.

    *Kókossmjör er ofureinfalt að gera. Látið um 3 bolla af kókosmjöli eða flögum í matvinnsluvél og maukið þar til kókosinn er orðinn fljótandi. Stöðvið matvinnsuvélina reglulega í ferlinu og skafið úr hliðinum. Þetta ætti að taka um 15 mínútur.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.