BBQ kjúklingur

Home / Fljótlegt / BBQ kjúklingur

Frábær kjúklingaréttur sem er einfalt að útbúa og slær í gegn jafnt hjá ungum sem öldnum. Einn af uppáhalds réttum barnanna og það eru sko aldrei afgangar þegar hann er á boðstólnum. Sérstaklega gott að bera hann fram með hrísgrjónum, salati og góðu hvítlauksbrauði.

IMG_8117

IMG_8122

BBQ kjúklingur
4 kjúklingabringur eða kjúklingalæri, t.d. frá Rose Poultry
1 dl BBQ sósa
1/2 dl soyasósa, t.d. frá Blue dragon
1 dl rjómi
1 dl púðursykur
1 dl apríkósusulta/marmelaði

  1. Raðið kjúklingabitunum í eldfast mót.
  2. Setjið hin hráefnin í pott og hitið. Hellið síðan yfir kjúklinginn.
  3. Setjið inn í 200°c heitan ofn í um 30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.

    Gott er að bera þennan fram með hrísgrjónum, salati og góðu hvítlauksbrauði.

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.