Kjúklingapasta með sólþurrkuðum tómötum og bræddum mozzarella í hvítlauksrjómasósu

Home / Kjúklingur / Kjúklingapasta með sólþurrkuðum tómötum og bræddum mozzarella í hvítlauksrjómasósu

Hér er á ferðinni einfaldur og ljúfur penne pastaréttur með kjúklingi, sólþurrkuðum tómötum og bræddum mozzarellaosti í hvítlauksrjómasósu sem smellpassar í helgarmatinn….ummmm.

pasta

Kjúklingapasta með mozzarella og sólþurrkuðum tómötum
3 hvítlauksrif, pressuð
1 krukka sólþurrkaðir tómatar
500 g kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
salt
paprikuduft
240 ml matreiðslurjómi
110 g rifinn mozzarellaostur
250 g pasta, t.d. penne pasta
1 msk þurrkað basil
¼ tsk rauðar piparflögur
sjávarsalt

  1. Eldið pastað skv. leiðbeiningum og þegar það er tilbúið geymið 120-ml af pastavatninu þar til síðar.
  2. Takið sólþurrkuðu tómatana úr olíunni og steikið á pönnu ásamt hvítlauknum í um 1 mínútu. Takið af pönnunni.
  3. Skerið kjúklingabringurnar í litla bita kryddið með paprikukryddi og salti og steikið á pönnunni. Skerið sólþurrkuðu tómatana í litla bita og bætið þeim saman við kjúklinginn.
  4. Setjið rjómann og mozzarellaostinn saman við og hitið að suðu. Lækkið þá hitann og hrærið stöðugt í eða þar til osturinn hefur bráðnað. Þynnið sósuna með því að bæta pastavatninu saman við.
  5. Bætið pasta út á pönnunna og kryddið með basil, chilíflögum og saltið að eigin smekk. Berið fram með salati og góðu brauði.

 

Leave your comment to Cancel Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.