Kjúklinga- og spínatlasagna

Home / Fljótlegt / Kjúklinga- og spínatlasagna

Skemmtileg útgáfa af lasagna með kjúklingi og spínati. Hér er á ferðinni virkilega góður réttur sem passar bæði á virkum dögum sem og um helgar.

IMG_0902

 

Kjúklinga og spínatlasagna 
500 g kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry (fæst sem frystivara í flestum matvöruverslunum)
Olía
1 msk karrý
2 laukar, saxaðir smátt
3 dl rjómi
2 dósir saxaðir tómatar
3 msk tómatsósa
1 tsk – 3 tsk chilíduft
1 msk kóríanderkrydd
1 tsk cumin (ath. ekki kúmen)
salt, pipar
12 stk lasagnaplötur
450 g spínat
200 g rifinn ostur

  1. Skerið kjúklinginn í strimla og steikið á pönnu ásamt olíu og karrý. Takið til hliðar.
  2. Setjið olíu á pönnu og steikið laukinn. Bætið síðan rjóma, tómötunum, tómatsósu, chilí (byrjið á 1 tsk og bætið síðan frekar við eftir hversu mikill styrkleikinn á að vera), kóríander og cumin.  Látið sósuna malla í 10 mínútur og smakkið hana til með salti og pipar.
  3. Smyrjið eldfast mót með olíu. Setjið þunnt lag af sósu í botninn og leggjið lasagnaplötur yfir. Setjið því næst sósu, spínat, kjúklingastrimlar og ost. Endurstakið þetta þrisvar sinnum eða eins og fatið leyfir. Endið á að láta sósu og ost.
  4. Bakið í 180°c heitum ofni í um 40 mínútur. Mér finnst gott að láta álpappír yfir svona ofnrétti og taka hann af í blálokin á eldurtímanum.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.