Tælenskur chilíkjúklingur á 10 mínútum

Home / Fljótlegt / Tælenskur chilíkjúklingur á 10 mínútum

Tælensk matargerð er í miklu uppáhaldi hjá mér og þessi tælenski chilíkjúklingaréttur er minn besti vinur á virkum kvöldum, þegar tíminn er af skornum skammti. Hann er ofureinfaldur í gerð og tekur einungis 10 mínútur í undirbúningi og bragðast ó-svo-vel.

IMG_3397

Tælenski chilíkjúklingurinn

IMG_3389

Fá hráefni og einfaldur í gerð

 

IMG_3437

Omnomm

 

Tælenskur chilíkjúklingur
2 msk smjör
8 kjúklingalæri, t.d. úrbeinuð læri frá Rose Poultry
35 g salthnetur, saxaðar
2 msk saxað kóríander

Sósan
60 ml sweet chilísósa, t.d. frá Blue Dragon
2 msk soyasósa, t.d. frá Blue Dragon
2 hvítlauksrif, pressuð
1 msk fiskisósa, t.d. Fish sauce frá Blue dragon
1 msk engifer, rifið
safi úr 1 límónu
1 tsk chilímauk,  t.d. minched chilí frá Blue dragon (má sleppa ef ykkkur finnst sósan nægilega sterk)

  1. Hrærið öllum hráefnunum fyrir sósuna saman og takið til hliðar.
  2. Bræðið smjörið á pönnu yfir meðalhita. Setjið kjúklingalærin á pönnuna og steikið á báðum hliðum í 2-3 mínútur eða þar til þau eru gyllt. Hellið þá chilísósunni saman við.
  3. Hellið öllu af pönnunni í ofnfast mót og setjið í 165 gráðu heitan ofn í 25-30 mínútur. Setjið á grill í lokin í 2-3 mínútur.
  4. Berið fram með söxuðu kóríander og salthnetum, hrísgrjónum og góðu salati.Njótið!

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.