Kínverskt nautakjöt í spicy appelsínusósu

Home / Fljótlegt / Kínverskt nautakjöt í spicy appelsínusósu

Það er langt síðan við höfum boðið upp á góða uppskrift af nautakjöti en hér kemur ein ómótstæðileg. Hún er eins og allar uppskriftir sem við elskum svo mikið, einföld, fljótleg og ó-svo bragðgóð. Mælum með þessari snilld.

IMG_6513

 

Kínverskt nautakjöt í spicy appelsínusósu
700 g nautakjöt
2 tsk fínrifinn appelsínubörkur
120 ml appelsínusafi
50 g púðusykur
2 msk hrísgrjónaedik, t.d. Rice vinegar frá Blue dragon
2 msk soyasósa, t.d. Soy sauce frá Blue dragon
2 tsk chilí og hvítlaukssósa, Sweet chilí and garlic stir fry sauce frá Blue dragon
2 tsk rifið engifer
2 tsk sterkja (t.d. hveiti)
4 tsk olía til steikingar
2-3 vorlaukar, smátt skornir

  1. Skerið kjötið í þunnar sneiðar, þerrið með eldhúspappír. Setjið til hliðar og geymið.
  2. Gerið sósuna með því að hræra saman appelsínubörk, appelsínusafa, sykur, hrísgrjónaedik, soyasósu, chilí-hvítlaukssósu, engifer og sterkju í skál. Takið til hliðar og geymið.
  3. Hitið 2 tsk olíu á pönnu við meðalhita. Setjið helminginn af kjötinu á pönnuna og brúnið á í um eina mínútu á hvorri hlið. Takið af pönnunni og látið í skál. Setjið nú afganginn af olíunni á pönnu og steikið afganginn af kjötinu. Takið af pönnunni og setjið í skál og geymið.
  4. Setjið appelsínublönduna á pönnuna við meðalhita. Hrærið í blöndunni þar til hún hefur þykknað eða í 2-3 mínútur.  Bætið þá steikinni saman við og hrærið í blöndunni. Bætið vorlauk saman við og berið fram með hrísgrjónum. Fyrir þá sem vilja láta þetta rífa aðeins í geta bætt niðurskornu chilí saman við.

Leave your comment to Cancel Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.