Grænmetisréttur með rauðri kókoskarrýsósu

Home / Fljótlegt / Grænmetisréttur með rauðri kókoskarrýsósu

Ef þú ert að leita af einföldum rétti, sem er hollur, góður og hentar fullkomlega til bera fram á virkum degi að þá þurfið þið ekki að leita lengra. Hér er á ferðinni dásamlegur grænmetisréttur með kókoskarrýsósu Uppskriftina fékk ég af vef Cookie and Kate en hún heldur úti uppskriftarsíðu með ferskum grænmetisréttum sem eru hver öðrum betri. Fyrir þá sem vilja fá sitt kjöt að þá er að sjálfsögðu engu verra að bæta því við.

IMG_6793

Grænmetisréttur með rauðri kókoskarrýsósu
1 msk kókosolía eða ólífuolía
1 tsk laukur, saxaður
smá salt
1 msk fersk engifer, fínrifið
2 hvítlauksrif, pressuð
1 rauð paprika, skorin í strimla
1 gul eða græn paprika, skorin í strimla
3 gulrætur, afhýdd og niðursneidd
2 msk rautt thai karrýmauk, t.d. red curry paste frá Blue dragon
1 dós kókosmjólk, t.d. Coconut milk frá Blue dragon
1 ½ tsk hrásykur eða púðusykur
2 tsk soyasósa, t.d. soyasósa frá Blue dragon
1 ½ tsk hrísgrjónaedik, t.d. Rice Vinegar frá Blue dragon
Til skrauts: Fersk basil eða kóríander og t.d. chilímauk

  1. Setjið olíu á pönnu og hitið. Setjið lauk og stráið smá salti yfir og steikið þar til laukurinn er farinn að mýkjast. Bætið  engifer og hvítlauk saman og steikið þar til farið að ilma eða í um 30 sek og hrærið stöðugt í blöndunni.
  2. Bætið paprikum og gulrótum saman við og steikið þar til það er farið að mýkjast. Bætið þá karrýmaukinu saman við og hrærið saman við grænmetið.
  3. Bætið því næst kókosmjólkinni saman við ásamt 120 ml af vatni og 1 ½ tsk sykri. Látið malla á vægum hita í um 5-10 mínútur.
  4. Takið þá af hitanum, bætið hrísgrjónaediki og soyasósu saman við og smakkið til með salti.
  5. Setjið núðlur eða hrísgrjón í skál og hellið karrýgrænmeti yfir. Stráið kóríanderi eða basilíku yfir allt.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.