Hollar Snickerskúlur með þremur innihaldsefnum

Home / Eftirréttir & ís / Hollar Snickerskúlur með þremur innihaldsefnum

Þessar dásamlega uppskrift af karamellukúlum með salthnetufyllingu kemur frá henni Önnu Rut okkar og innihalda einungis þrjú hráefni, eru ofureinfaldar í gerð og bragðast dásamlega.

snickerskúlur

 

Hollar Snickerskúlur
20 steinlausar döðlur, t.d. frá Himneskri hollustu
1 bolli salthnetur
150g dökkt súkkulaði, t.d. Konsum suðusúkkulaði frá Nóa Síríus

  1. Látið döðlurnar liggja í bleyti í köldu vatni í hálftíma, eða í 2 mínútur í sjóðandi vatni ef ykkur liggur á.
  2. Hellið vatninu af döðlunum og setjið þær í matvinnsluvél eða blandara og maukið þar til þær verða að mjúkri karamellu.
  3. Setjið helminginn af salthnetunum út í döðlumaukið og maukið þar til ekki eru mjög stórir bitar eftir af hnetunum.
  4. Grófsaxið hinn helminginn af hnetunum og hrærið saman við karamellublönduna með sleif.
  5. Búið til kúlur úr karamellunni með höndunum, best er að setja smá kókosolíu á hendurnar svo karamellan festist ekki við þær.
  6. Setjið karamellurnar inn í ísskáp og kælið þær örlítið.
  7. Bræðið súkkulaðið, hjúpið karamellurnar og látið þær á smjörpappír á meðan súkkulaðið harðnar.

Leave your comment to Cancel Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.