Kjúklingapasta í rjómaostasósu með spínati og stökkum beikonbitum

Home / Fljótlegt / Kjúklingapasta í rjómaostasósu með spínati og stökkum beikonbitum

Þessi pastaréttur er hreinn unaður og færir mann aðeins nær Ítalíunni yndislegu. Hann er einfaldur í gerð og fullkominn í gott matarboð án mikillar fyrirhafnar. Parmesan rjómasósan er með hvítlauk, spínati og ferskum tómötum og síðan er pasta bætt saman við og endað á kjúklingabitum, stökku beikoni og basilíku. Getur ekki klikkað og mun ekki …

img_5086

Rjómaostasósan með spínati, tómötum, hvítlauk og parmesan 

img_5130

Unaðslegt og einfalt pasta

Kjúklingapasta í rjómaostasósu með spínati og stökkum beikonbitum
350 g spaghetti
1 msk ólífuolía
450 g kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry 
6 sneiðar beikon
3-4 hvítlauksrif
250 g plómutómatar
3 lúkur spínat, t.d. lífrænt spínat frá Hollt&Gott
120 ml rjómi
35 g parmesan
sjávarsalt
pipar
Fersk basilíka

  1. Sjóðið pasta í sjóðandi saltvatni skv. leiðbeiningum á pakkningu. Þegar pastað hefur verið eldað „al dente“ geymið 240 ml af pasta vatni.
  2. Meðan pastað er að sjóða hitið olíu á pönnu við meðalhita. Kryddið kjúklinginn með salti og pipar og steikið þar til hann er fulleldaður í gegn. Setjið á skurðbretið og skerið í sneiðar.
  3. Steikið því næst beikonið þar til það er orðið stökkt. Takið af pönnunni og þerrið á eldhúsrúllu. Skerið síðan í litla bita.
  4. Hellið helmingjun af beikonfitunni af pönnunni en haldið hinumhlutanum og bætið hvítlauk, tómötum og spínati út á pönnuna og saltið og piprið.
  5. Bætið rjóma, parmesan og 120 ml af pastavatni saman við og látið malla í nokkrar mínútur.
  6. Bætið því næst soðnu pasta saman við og blandið vel saman þannig að rjómasósan hylji pastað.
  7. Bætið því næst kjúklingi og beikonbitum saman við og skreytið með ferskri basilíku.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.