Betri en “take away” kjúklingaréttur í rauðri kókoskarrýsósu

Home / Fljótlegt / Betri en “take away” kjúklingaréttur í rauðri kókoskarrýsósu

Fyrir mér er fátt betra en góður asískur réttur. Kostirnir við asíska matargerð eru margir en þó helst þeir að maturinn er einfaldur í gerð, meinhollur og bragðast dásamlega. Allt sem við elskum við asíska matargerð er nú samankomið í þessum dásemdar kjúklingarétti sem er mildur og bragðgóður og betri en nokkur take away sem við höfum bragðað.

thai

Litríkt og fallegt

Kjúklingur í rauðri kókoskarrýsósu
600 g kjúklingalæri, t.d. frá Rose Poultry (fást sem frystivara í matvöruverslunum)
1 msk kókosolía
1 dl kókosmjöl
1 rauð paprika, skorin í strimla
1 laukur, saxaður
2 msk engifer, rifið
1 hvítlauksrif, saxað
1 rautt chilí, smátt söxað
2 tsk börkur af sítrónu, fínrifinn
1 msk sítrónusafi
2 ½ dl kókosmjólk, t.d. Coconut milk frá Blue dragon
3 dl vatn
2 tsk rautt karrý mauk, t.d. Red curry paste frá Blue dragon
1-2 tsk tómatmauk
1-2 tsk ferskt kóríander, saxað (má sleppa)
1 tsk sykur
salt og pipar

  1. Þurristið kókosmjöl á pönnu, hrærið stöðugt í þar til það er orðið gullið að lit og farið að ilma. Takið af pönnunni og hellið í skál.
  2. Skerið kjúklinginn í minni bita. Setjið 1 msk af kókosolíu á pönnu og steikið kjúklinginn. Takið af pönnunni og geymið.
  3. Blandið engifer, hvítlauk, chilí, lauk, sítrónuberki og sítrónusafa saman í skál. Setjið aðeins meira af olíu á pönnuna og léttsteikið.
  4. Bætið kókosmjöli saman við ásamt paprikustrimlum og steikið í 4-5 mínútur til viðbótar.
  5. Bætið því næst kókosmjólk, vatni, tómatmauki, kóríander og sykri saman við. Bætið við meira rauðu karrýmauki ef þið viljið hafa þetta bragðsterkara. Látið malla í 15-20 mínútur.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.