Kókoskjúklingur með döðlum, hvítlauk og kasjúhnetum

Home / Fljótlegt / Kókoskjúklingur með döðlum, hvítlauk og kasjúhnetum

Ég fell ávallt kylliflöt fyrir kjúklingaréttum sem innihalda döðlur enda slá þannig réttir einhvernveginn ávallt í gegn. Má þar kannski helst nefna snilldarkjúklingaréttinn með döðlum og beikoni sem sló eftirminnilega í gegn og er einn af vinsælli réttum GRGS fyrr og síðar.

Þessi kjúklingaréttur sem hér birtist inniheldur meðal annars kókosmjólk, chilí, hvítlauk og döðlur er einn af (alltof mörgum) uppáhalds réttum fjölskyldunnar. Hann er svo dásamlega einfaldur í gerð og hægt að leika sér með hráefnin eftir því hvað til er í ískápnum. Ég skipti t.d. kasjúhnetum út fyrir möndluflögur og var það engu síðra. Frábær réttur með hrísgrjónum og naan. Njótið, njótið og njótið!

 

Kókoskjúklingur með hvítlauk, döðlum og kasjúhnetum

900 g kjúklingalundir eða læri, t.d. frá Rose Poultry
1 msk ólífuolía
2 cm ferskt engifer, fínrifið
3 hvítlauksrif, smátt söxuð
1 rauður chilí, saxaður
1 tsk tumeric
1 tsk kardimommukrydd
2 msk soya sósa, t.d. Dark soy sauce frá Blue dragon
1 dós kókosmjólk, t.d. Coconut milk frá Blue dragon
100 g kasjúhnetur, gróflega saxaðar
150 g döðlur, steinlausar
salt og pipar
1/2 búnt ferskt kóríander, saxað

  1. Skerið kjúklinginn í litla bita.
  2. Hitið olíu á pönnu og og steikið kjúklinginn.
  3. Bætið engifer, hvítlauk og chili saman við.
  4. Bætið því næst kryddinu saman við og blandið vel saman.
  5. Bætið soyasósunni saman við. Bætið síðan kókosmjólkinni saman við og látið malla í 2-3 mínútur. Smakkið til með salti og pipar.
  6. Setjið döðlurnar og kasjúhneturnar saman við hellið í ofnfast mót og eldið við 180°c í um 10-15 mínútur. Takið úr ofni og stráið kóríander yfir allt.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.