Geggjað apríkósu og engifer marmelaði

Home / Fljótlegt / Geggjað apríkósu og engifer marmelaði

Nú eru síðustu dagar í sumarfríi hjá mér og ég verð nú að segja að sólin mætti gjarnan skína aðeins á okkur hérna í Reykjavík. Hver bauð haustinu í heimsókn í júlí? Hver?????

Ég reyni að sjálfsögðu að gera gott úr þessu og gerði þessa dásamlega góða marmelaði úr apríkósum og engifer. Litir sólarinnar sko…er það ekki eitthvað (hohoho).

Þessi uppskrift er ofureinföld í gerð og þið sem sjáið orðið sultuhleypi og ætlið að loka síðunni…dokið við. Sultuhleypirinn er duft sem fæst í öllum matvöruverslunum og er sett í lokin til að hún þykkni og verði eins og sultur eiga að vera. Verður ekki einfaldara. Mæli svo sannarlega með að prufa þessa dásemd.

Algjört noms!

 

 

 

Apríkósu- og engifer marmelaði
1 kg apríkósur
1 sítróna, safi og börkur
1 msk ferskt engifer, fínrifið
1/2 dl vatn
350 g sykur
1 msk sultuhleypir (gelatín fæst í matvöruverslunum)

  1. Afhýðið apríkósurnar og fjarlægið steininn úr þeim. Þegar þetta er búið er raunþyngd um 500-600 g sem notast í marmelaðið.
  2. Skerið apríkósurnar í bita og setjið í pott ásamt fínrifnum sítrónuberki, sítrónusafa, engifer og vatni. Látið malla í 8-10 mínútur eða þar til apríkósurnar eru farnar að linast. Maukið þær aðeins með gaffli eða sleif. Mér þykir gott að hafa einstaka stærri bita í marmelaðinu en það er smekksatriði.
  3. Setjið sykur saman við og látið malla í 4-5 mínútur. Takið af hellunni og hrærið sultuhleypi saman við.
  4. Hellið heitri sultunni í krukku. Geymið í kæli.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.