Kjúklingur í mangósósu

Home / Fljótlegt / Kjúklingur í mangósósu

Kjúklingur í mangósósu færir okkur örlítið af sumar og sól fyrir matargerðina á þessum haustdögum. Þetta er virkilega bragðgóð uppskrift sem einfalt er að gera.

 

Kjúklingur í mangó sósu
Fyrir 2-3

Styrkt færsla
8 kjúklingaleggir
safi úr einni sítrónu

Mangósósa
4 msk mango chutney, t.d. frá Patak’s
2 tsk karrý
2 msk dijon sinnep
4 msk mjúkt smjör
1 msk eplasafi
1 tsk salt
1/4 tsk timían
Svartur pipar

 

  1. Skerið nokkrar rend­ur í kjúk­ling­inn og kreistið sítr­ónusafa yfir hann.
  2. Því næst er það sós­an, en hún verður til með því að blanda öll­um hinum hrá­efn­un­um sam­an í skál og hræra vel.
  3. Sós­unni er hellt yfir kjúk­ling­inn sem fer inn í 175° heit­an ofn og er bakaður í 40-50 mín­út­ur eða þar til hann er fulleldaður.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.