Gúrm taco pasta

Home / Fljótlegt / Gúrm taco pasta

Það hrósuðu allir matnum í kvöld enda svona réttur sem er mitt á milli lasagna, spaghetti bolognese og taco máltíðar. Semsagt réttur sem sameinar alla rétti sem börnin elska.

 


Taco pasta
Fyrir 4-6
1-2 msk ólífuolía
1 laukur, saxaður
2-3 hvítlauksrif, söxuð
500 g nautahakk
1 poki (4-5 msk) tacokrydd
1 dós (400g) tómatar, saxaðir eða maukaðir
2 msk tómatpúrra
7 dl vatn
400 g farfalle pasta
rifinn mozzarella
nachos

  1. Steikið lauk og hvítlauk í olíu í stórum potti. Bætið nautahakkinu saman við og steikið.
  2. Setjið tacokryddið saman við ásamt tómötum, tómatpúrru og vatni. Kryddið með salti og pipar.
  3. Setjið lok á pottinn og látið malla við vægan hita í 20 mínútur.
  4. Bætið pastanu út í og sjóðið þar til pastað er tilbúið. Bætið við vatni ef þörf er á.
    Setjið í skálar og toppið með rifnum mozzarellaosti og muldu nachos.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.