Oreo súkkulaðimús

Home / Eftirréttir & ís / Oreo súkkulaðimús

Þessi eftirréttur er fyrir okkur, forföllnu Oreo aðdáendurna. Ekki nóg með það er hann einnig tilvalinn fyrir þá sem vilja henda í eitthvað gúrm á stuttum tíma. Eftirréttinn má gera með góðum fyrirvara og verður bara betri ef eitthvað er sólahring síðar.

 

 

 

Ofureinföld og girnileg súkkulaðimús

Oreo súkkulaðimús
Fyrir 6
300 g Oreo kex
3 dl rjómi
1 tsk vanillusykur

Súkkulaðimús
150 g dökkt súkkulaði
3 dl rjómi
3 msk flórsykur
3 eggjarauður

  1. Myljið Oreo kex í matvinnsluvél og takið smá frá til skrauts. Setjið í botninn á glösum/krukkum.
  2. Þeytið allan rjómann 6 dl (3+3 dl) með vanillusykri. Skiptið jafnt í 2 skálar og kælið.
  3. Gerið súkkulaðimúsina og bræðið súkkulaðið í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði.
  4. Hrærið flórsykri saman við súkkulaði og hrærið stöðugt í á meðan.
  5. Þeytið eggjarauðurnar í hrærivél eina í einu þar til þær eru orðnar að þykku kremi.
  6. Hrærið þá kreminu varlega saman við súkkulaðið.
  7. Deilið súkkulaðimúsinni á glösin.
  8. Setjið rjóma yfir og Oreo mulning yfir allt.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.