Innihaldslýsing

250 g rjómaostur, t.d. Philadelphia
50 g parmesan, rifinn
150 g rifinn mozzarella
10 blöð af ferskri basilíku, söxuð
12 ferskir jalapenos (eða smápaprikur)
2 egg
3 msk vatn
120 g brauðmylsna
150 g hveiti
2 tsk paprikuduft
ólífuolía
Rjómaostafylltur jalapeno er frábær sem snarl, forréttur eða sem smáréttur á veisluborðið

Leiðbeiningar

1.Blandið rjomaosti, parmesan, mozzarella og saxaðri basilíku saman í skál.
2.Skerið jalapeno langsum í tvennt og kjarnhreinsið. Fyllið hvorn helminginn með ostablöndunni. Hrærið eggjum saman við vatnið. Setjið brauðmylsnuna í aðra skál og hveiti í þá þriðju.
3.Dýfið jalapeno fyrst í hveiti og svo í eggjablönduna og að lokum í brauðmylsnuna. Setjið á ofnplötu með smjörpappír.
4.Kryddið með paprikudufti og dreypið dáltítilli ólívuolíu yfir.
5.Bakið í 180°c heitum ofni í 30 mínútur.

Rjómaostafylltur jalapeno er frábær sem snarl, forréttur eða sem smáréttur á veisluborðið. Uppskriftin kemur úr nýjustu bók GulurRauðurGrænn&salt sem ber sama heiti og er stútfullt af frábærum sumarlegum og partývænum uppskriftum.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.