Innihaldslýsing

1 rauð paprika
20 rauð vínber
1/2 púrrulaukur
1 mexikóostur
1 piparostur
1 hvítlauksostur eða jalapeno
1 dós 10% sýrður rjómi, t.d. frá Mjólka
2 -3 msk majones
Þetta slær ávallt í gegn

Leiðbeiningar

1.Kjarnhreinsið paprikuna og skerið í litla bita og vínber í 2-4 hluta.
2.Skerið ostana niður í litla bita. Saxið púrrulaukinn smátt.
3.Blandið öllu saman í skál og geymið í kæli í 2-3 tíma áður.
4.Berið fram með kexi eða góðu brauði.

Þetta geggaða ostasalat ætti að vera mörgum kunnulegt enda hefur þetta gengið á milli saumaklúbba í mörg herrans ár. Engu að síður eru margar útgáfur í boði og þessi er mín uppáhalds.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.