Innihaldslýsing

900 g kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
5 msk dijon sinnep
4 msk hunang
4 msk 18 % sýrður rjómi, t.d. frá Mjólka
2 msk tómatsósa
2 msk grillkrydd
Grillaður kjúklingur með hunangssinnepssósu Styrkt færsla

Leiðbeiningar

1.Skerið kjúklinginn í þrennt. Blandið öllum hráefnunum fyrir marineringuna saman í skál. Takið smá af marineringunni til að bera fram með kjúklinginum og bætið síðan kjúklinginum út í afganginn af marineringunni. Marinerið í kæli í 2-4 tíma eða yfir nótt t.d. í poka með rennilási. Takið úr kæli og grillið í 4-5 mínútur á hvorri hlið.

Enn skín sólin og tilvalið að skella einhverju geggjuðu á grillið. Undanfarin ár hefur kjúklingur fyrir heimska verið einn sá allra vinsælasti grillrétturinn á síðunni en hér kemur uppskrift sem er engu síðri – kjúklingurinn góðu hunangssinnepssósunni. Ég mæli með því að bera hann fram með sætum kartöflum eins og þessum eða þessum.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.