Ahhhh…heimagert myntute færir manni sól í hjarta
Ef ég ætti að velja kaffi eða te myndi ég klárlega velja einn rótsterkan espresso, sérstaklega í morgunsárið. Te drekk ég hinsvegar á kvöldin yfir vetrartímann og það kallar að sjálfsögðu á sófa og kósýteppi.
Ég fékk hinsvegar eitt besta te sem ég hef á ævinni smakkað þegar ég var á líbönskum stað á Spáni og þar fékk tedrykkja algjörlega nýja merkingu. Ég verð að læra að búa það til, en þangað til langar mig að gefa ykkur “uppskriftina” að þessu dásamlega myntute og hvetja ykkur til að búa til eitt svona alvöru. Myntan er dásamleg jurt og ilmurinn sem kemur frá henni engri lík og sama hvernig virðar úti er sumarið amk. komið á heimilið. Einfalt og ótrúlega bragðgott.
Heimalagað myntute
2 bollar vatn (1 bolli hér er um 240 ml)
15 myntulauf (fínt að hafa þau á stiklunum)
2 msk hunang
1 sítrónusneið
Aðferð: Sjóðið vatnið. Kreistið myntuna lauslega og leggið hana í pottinn. Látið standa í 3-5 mínútur. Fjarlægið myntuna og bætið hunangi útí, blandið vel saman. Kreistið sítrónusneið útí.
Leave a Reply