Fyrir nokkrum árum þegar ég var tiltölulega nýbyrjuð í vinnunni minni mætti einn starfsmaðurinn með þessa himnesku köku. Það er skemmst frá því að segja að síðan þá hefur þessi starfsmaðurinn verið í sérstöku uppáhaldi og kakan einnig enda fáar kökur sem ná að skáka þessari. Einföld í gerð og frábær í munni.
Baby Ruth
8 eggjahvítur
4 dl sykur
4 dl púðusykur
1 tsk lyftiduft
1 tsk vanilludropar
5 dl salthnetur, smátt saxaðar
40 stk ritzkex, mulið smátt
Aðferð
- Stillið ofninn á 180°c.
- Stífþeytið eggjahvítur og sykur saman. Bætið því næst salthnetum, ritzkexi, lyftidufti og vanilludropum varlega saman við með sleif.
- Skiptið deiginu í tvö form og bakið í 20 mínútur. Kælið.
- Setjið helming af kreminu á annan botninn. Látið seinni botninn yfir og restina af kreminu. Skreytið með salthnetum og berið fram með rjóma.
Krem
8 eggjarauður
150 g flórsykur
100 g smjör
200 g suðusúkkulaði
Aðferð
- Þeytið eggjarauður og flórsykur vel saman, þar til það er ljóst og loftkennt.
- Bræðið smjör og súkkulaði saman við vægan hita í örbylgjuofni eða vatnsbaði. Hellið súkkulaðiblöndunni í eggjamassann og hrærið vel saman.
Leave a Reply