Múslíbitar með poppi er hin mesta snilld. Stútfullir af góðri næringu eins og möndlusmjöri, kókosmjöli, graskers-, sólblóma- og hörfræjum, möndlum og poppaðir upp með poppi. Dásamlega bragðgóðir og eitthvað sem þið verðið að prufa.
Poppkex
240 g möndlusmjör
60 ml agave sýróp
50 g eplamauk, ósætt
5 bollar popp, poppað
200 g möndlur, skornar gróflega
40 g graskersfræ
40 g kókosmjöl
40 g sólblómafræ
40 g hörfræ
- Setjið smjörpappír á bökunarform (stærð um 23 x 33 cm).
- Setjið möndlusmjör, sýróp og eplamauk í pott og hitið við vægan hita þar til þetta er bráðið. Sósan þarf að vera nægilega þunn til að leka yfir poppið. Hrærið út í örlítið af ólífuolíu ef þið þurfið að þynna hana.
- Setjið poppkorn, hnetur, graskersfræ, kókosmjöl, sólblómafræ og hörfræ í stóra skál og blandið vel saman. Hellið möndlusmjörsósunni saman við og blandið vel saman.
- Setjið í bökunarformið (23 x 33 cm) hulið með smjörpappír og þrýstið blöndunni niður. Látið plast yfir bökunarformið og frystið yfir nótt. Skerið í bita og geymið þá í frysti þar til þeirra er notið.
Leave a Reply