Kjúklingavefjur með eplabitum, sólþurrkuðum tómötum og mango chutney
Kjúklingavefjur með eplabitum, sólþurrkuðum tómötum og mango chutney

Innihaldslýsing

1 kjúklingur, eldaður
1 lítill rauðlaukur, saxaður
1 hvítlauksrif, pressað
2 rauð epli, skorin í teninga
3 avacado, skorið í teninga
1 msk balsamikedik, t.d. Philippo Berio
2 msk olía
1 tsk karrý
salt
4 msk mangó chutney, t.d. frá Pataks
8 sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
8 tortillur
Kjúklingavefjur með mangó chutney

Leiðbeiningar

1.Blandið lauk, hvítlauk, eplum og avacado saman í skál.
2.Setjið edik, olíu, karrý, salt og mangó chutney saman við og bætið sólþurrkuðum tómötum útí.
3.Skerið kjúklinginn í bita og blandið saman við salatið.
4.Hitið tortillurnar lítillega og látið fyllinguna á tortillurnar og rúllið upp.

Ómæ…þessar kjúklingavefjur með eplabitum, mango chutney, avacado og sólþurrkuðum tómötum eru svo dásamlegar. Hollar og svo yndislega einfaldar. Þær eru líka sniðugar í nestisboxið eða lautarferðina.  Mæli svo innilega með þessari og hlakka til að heyra hvernig ykkur líkaði.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.