Skilmálar
Almennt
GulurRauðurGrænn&salt áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Afhending vöru
Pantanir sem eru gerðar í vefverslun GulurRauðurGrænn&salt eru að jafnaði póstlagðar daginn eftir að gengið hefur verið frá greiðslu þeirra. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. GulurRauðurGrænn&salt ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá GulurRauðurGrænn&salt.com og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.
Skilafrestur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunarlegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.
Netverð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Öryggi
Í vefverslun GulurRauðurGrænn&salt er tekið við millifærslu ásamt Visa og Mastercard kreditkortum. Viðskiptavinur velur vöru eða þjónustu á vefsíðu söluaðila og þegar kemur að greiðslu er hann fluttur yfir á Greiðslusíðu Valitor þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram. Þegar leitað hefur verið eftir heimild fyrir færslu, berst staðfesting til viðskiptavinar og söluaðila. Greiðslusíða Borgunar tryggir að kortaupplýsingar viðskiptavina vefverslana séu meðhöndlaðar í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi og aldrei aðgengilegar þriðja aðila.
Lög um varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun GRGS ehf á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.