Enn eitt átakið í því að borða fisk oftar er hafið. Í raun skil ég ekki af hverju fiskur er ekki á borðum hjá okkur 4-5 sinnum í viku í einhverri mynd, svo góður er hann…þar að segja sé uppskriftin góð. Þessi uppskrift sem ég gef ykkur hér er ótrúleg og fékk fullt stig húsa á mínu heimili og gott betur en það. Rétturinn er svo einfaldur og fljótlegur í gerð og myndi sóma sér frábærlega hvort sem er á virkum degi eða í flottu matarboði.
Fiskréttur með kapers og sítrónurjómasósu
Fyrir 4
800-900 g hvítur fiskur (t.d. þorskur eða ýsa)
1 tsk paprikuduft
1 tsk laukduft (onion powder)
1/2 tsk sykur
2 tsk sjávarsalt
2 msk smjör
safi úr 2 sítrónum
1 msk hveiti
250 ml rjómi
50 g kapers
- Blandið paprikudufti, laukdufti, sykri og sjávarsalti saman í skál og stráið yfir fiskinn. Grillið eða ofnbakið fiskinn í um 8 mínútur eða þar til fiskurinn er passlega eldaður (varist að ofelda hann).
- Bræðið smjörið á meðan í potti og hrærið síðan sítrónusafa og hveiti saman við.
- Bætið rjómanum smátt og smátt saman við og hrærið þar til sósan er byrjuð að þykkna en látið hana alls ekki sjóða. Bætið að lokum kapers út í sósuna og hellið yfir fiskinn.
Berið fram t.d. með rótargrænmeti, kartöflumús og litríku salati og enjoy!
Leave a Reply