Í kringum jólin er svo gaman að koma færandi hendi og gleðja vini og vandamenn með smá góðgæti. Hér koma hugmyndir að 7 bragðgóðum, tiltölulega einföldum og skemmtilegum jólagjöfum sem munu hitta í mark hjá þeim sem þær fá.
1. Smákökur með trönuberjum og hvítu súkkulaði
Þessar komast algjörlega á topp tíu listann yfir bestu smákökur sem ég hef á ævinni bragðað á. Trönuber og hvítt súkkulaði klikka aldrei og ætla sko ekki að fara að byrja á því núna. Skellið þeim í fallega krukku og þið eruð komin með einstaklega bragðgóða gjöf. Uppskriftina finnið þið hér
2. Rauðlaukssultan
Uppskriftina að þessari rauðlaukssultu kemur frá einum af gestabloggurum sem hafa komið með sína góða uppskrift á þessa síðu, honum Högna Kristjánssyni. Hann gaf jafnframt upp dásamlega uppskrift að kjúklingalifur sem passar svo vel með rauðlaukssultunni. Rauðlaukssultan er einnig frábær á jóladiskinn með villibráðinni. Uppskriftina má finna hér
3. Snjókornakonfekt
Hér kemur ein frábær jólagjafahugmynd fyrir fólkið sem vill hafa það sætt, bæði í útliti og bragði. Hrikalega jólalegt nammi, með sykurpúðum, trönuberjum og hvítu súkkulaði. Uppskriftina sjáið þið hér.
Ég veit ekki hversu oft ég hef bakað þetta dásamlega brauð. Frábært og svo ótrúlega einföld uppskrift. Hér sannast að það einfalda er stundum það besta. Pakkið inn í pappír með fallegri slaufu og þið eruð komin með klassgjöf. Uppskriftin er hér.
5. Ómótstæðileg Peacan pie
Þessi er klassíker. Dásamlega stökk og góð peacan pie með mjúkri karmellufyllingu er frábær með vanilluís. Hana má frysta. Eitthvað sem ætti að slá í gegn hjá öllum sem kunna gott að meta. Peacan pie uppskriftin er einföld og má sjá hér.
6. Syndsamlega súkkulaðibananabrauðið
Það segir sig sjálft, það eru litlar líkur á að þetta geti klikkað. Við elskum súkkulaði og við elskum bananabrauð og það að manni hafi ekki dottið þetta fyrr í hug er ótrúlegt. Saman er þetta syndsamlega gott! Gott að gefa, enn betra að borða það samt bara sjálfur. Uppskriftin er hér.
7. Jólatrésbrauðið góða
Jólatrésbrauðið er sætt og yndislegt brauð sem tilvalið er að baka á jóladag og borða með fjölskyldunni. Hér má setja þurrefnin saman í fallega krukku og láta uppskrift með mynd af þessu dásamlega jólatrésbrauði. Einföld og sniðug jólagjöf. Uppskriftin er hér.
Leave a Reply