Það er skemmtilegt að útbúa bökur og raða í þær þeim hráefnum sem hugurinn girnist hverju sinni. Að þessu sinni sameinast mín uppáhalds hráefni í dásamlega böku sem gaman er að bjóða upp á. Bökur er gott að útbúa deginum áður og bera fram kalda eða hita örlítið í ofni áður en hún er borin fram og er hinn fullkomni veislumatur.
Baka með aspas, beikoni og rjómaosti
Botn
125 g kalt smjör, skorið í litla teninga
250 g heilhveiti eða spelt
2 msk kalt vatn
1 eggjarauða
salt og pipar
Fylling
6 strimlar bacon
1 lítill laukur, saxaður
120 g rjómaostur
250 g ferskur aspas, skorinn í bita
4 egg
320 ml rjómi
1 tsk salt
Aðferð
- Látið öll hráefnin fyrir botninn í skál og hnoðið deigið í vél eða höndum þar til smjörið hefur blandast algjörlega saman við. Geymið í kæli um stund (að lágmarki 30 mínútur). Fletjið síðan deigið út í smurt bökumót (í kringum 24 cm) og pikkið í botninn með gaffli áður en fyllingin er sett í.
- Steikið beikon og lauk á pönnu þar til bæði hefur lítillega brúnast. Sjóðið aspasinn í 2 mínútur. Takið þá úr vatninu og látið strax undir kalt vatn í nokkrar sek.
- Látið því næst beikonblönduna og aspasinn í bökuna og dreifið rjómaost í bitum yfir.
- Hrærið saman eggjum, rjóma og salti og hellið yfir allt.
- Bakið við 175°c í um 40 mínútur og gangið í skugga um að hún sé fullelduð áður en þið takið hana út með því að stinga prjóni í miðju bökunnar.
- Leyfið bökunni að kólna áður en hún er borin fram.
Leave a Reply