Þessar kjúklingabringur eru fylltar með geggjaðri fyllingu sem samanstendur af salthnetum, fetaosti og ferskri basilíku. Beikoni er síðan vafið utanum bringurnar áður en þær fara í ofninn. Réttur sem einfalt er að gera og á alltaf vel við með góðu salati. Þið sláið í gegn með þessum rétti!
Geggjaðar kjúklingabringur
Beikonvafðar kjúklingabringur með salthnetum og fetaostafyllingu
6 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
1 dl salthnetur, gróflega saxaðar
1 dl fetaostur, mulinn
1 búnt fersk basilíka, söxuð
1 pakki beikon
- Skerið í kjúklingabringurnar fyrir fyllinguna.
- Blandið salthnetum, fetaosti og saxaðri basilíku saman í skál og látið fyllinguna í bringurnar.
- Vefjið beikoni utanum bringurnar.
- Setjið í 180°C heitan ofn í 30 mínútur.
Leave a Reply