Fyrir mér er fátt betra en góður asískur réttur. Kostirnir við asíska matargerð eru margir en þó helst þeir að maturinn er einfaldur í gerð, meinhollur og bragðast dásamlega. Allt sem við elskum við asíska matargerð er nú samankomið í þessum dásemdar kjúklingarétti sem er mildur og bragðgóður og betri en nokkur take away sem við höfum bragðað.
Litríkt og fallegt
Kjúklingur í rauðri kókoskarrýsósu
600 g kjúklingalæri, t.d. frá Rose Poultry (fást sem frystivara í matvöruverslunum)
1 msk kókosolía
1 dl kókosmjöl
1 rauð paprika, skorin í strimla
1 laukur, saxaður
2 msk engifer, rifið
1 hvítlauksrif, saxað
1 rautt chilí, smátt söxað
2 tsk börkur af sítrónu, fínrifinn
1 msk sítrónusafi
2 ½ dl kókosmjólk, t.d. Coconut milk frá Blue dragon
3 dl vatn
2 tsk rautt karrý mauk, t.d. Red curry paste frá Blue dragon
1-2 tsk tómatmauk
1-2 tsk ferskt kóríander, saxað (má sleppa)
1 tsk sykur
salt og pipar
- Þurristið kókosmjöl á pönnu, hrærið stöðugt í þar til það er orðið gullið að lit og farið að ilma. Takið af pönnunni og hellið í skál.
- Skerið kjúklinginn í minni bita. Setjið 1 msk af kókosolíu á pönnu og steikið kjúklinginn. Takið af pönnunni og geymið.
- Blandið engifer, hvítlauk, chilí, lauk, sítrónuberki og sítrónusafa saman í skál. Setjið aðeins meira af olíu á pönnuna og léttsteikið.
- Bætið kókosmjöli saman við ásamt paprikustrimlum og steikið í 4-5 mínútur til viðbótar.
- Bætið því næst kókosmjólk, vatni, tómatmauki, kóríander og sykri saman við. Bætið við meira rauðu karrýmauki ef þið viljið hafa þetta bragðsterkara. Látið malla í 15-20 mínútur.
Leave a Reply