Ótrúlega ljúffengir Oreo ostakökubitar sem eru bæði einfaldir og fljótlegir í undirbúningi. Eins og flestar ostaköku eru þeir þó bestir vel kaldir þannig að þeir þurfa að vera dágóða stund í kæli áður en þeir eru bornir fram til að ná fullkomnun. Hér er á ferðinni algjört gúmmelaði sem klikkar ekki!
Einfaldir Oreo ostakökubitar
36 Oreo kexkökur, skipt niður
115 g smjöör, skipt niður
4 pakkar Philadelphia rjómaostur
200 g sykur
1 sýrður rjómi
1 tsk vanilludropar
4 egg
200 g suðusúkkulaði
- Setjið álpappír í bökunarform á stærð við lasagnafat (eða notið hreinlega lasagnafat). Setjið 24 Oreokökur í matvinnsluvél og myljið niður, þó ekki of fínt (gott að láta vélina á pulse). Ef þið eigið ekki matvinnsluvél, setjið einfaldlega kökurnar í plastpoka, lokið pokanum og látið kökukefli eða hnefann dynja á kökunum (fínasta útrás).
- Bræðið helminginn af smjörinu og blandið saman við muldu Oreokökurnar. Setjið í botninn á bökunarforminu og þrýstið vel niður.
- Hrærið rjómaosti og sykri saman og bætið sýrða rjómanum og vanilludropum út í. Setjið egg út í, einu í einu þar til það hefur blandast vel saman.
- Takið afganginn af Oreokökunum og grófsaxið þær og bætið saman við rjómaostablönduna. Hellið þessu síðan yfir Oreo botninn.
- Setjið inn í 165°c heitan ofn í um 45 mínútur. Takið úr ofninum og leyfið að kólna í um 20 mínútur.
- Bræðið súkkulaðið og afganginn af smjörinu saman (ég nota örbylgjuofninn til þess) og dreifið yfir ostakökuna.
Geymið kökuna í kæli í amk. 4 tíma þar til hún er borin fram. Skerið í bita og njótið vel.
Leave a Reply