Það er fátt betra en að byrja daginn á ferskum og bragðgóðum smoothie. Þessi vatnsmelónusmoothie er skemmtileg viðbót í safnið. Hann er góður sem morgundrykkur, skemmtilegur sem öðruvísi fordrykkur en einnig dásamlegur með léttum mat.
Vatnsmelónu smoothie
5 bollar vatnsmelóna, steinahreinsuð
1 þroskaður banani
1/2 bolli frosin jarðaber
1/3 bolli mjólk
Aðferð
- Látið allt saman í blandara, en mjólkina í lokin.
Leave a Reply