Ég er algjör aðdáandi Froosh drykkjanna enda svo ótrúlega sniðugt að grípa þessa hollustu með sér hvert sem maður fer. Froosh drykkirnir innihalda einungis ferska ávexti, ekkert annað hvorki þykkni, rotvarnarefni eða viðbættan sykur og veita því frábæra næringu. Ég hef leikið mér aðeins með ýmsar útgáfur af þessum góða drykk og hér er uppskrift af einum af mínum uppáhalds – sem klikkar ekki eftir góða æfingu.
Froosh með möndlum, kókosmjöli og viðbættu próteini
Morgunverður á hraðferð
1 flaska Froosh með ananas, banana og kókos
1/2 dl möndlur
1/2 dl kókosmjöl
1 skeið prótein
klaki
- Setjið öll hráefnin í blandara og blandið öllu mjög vel saman.
- Hellið í glas og skreytið að vild.
Leave a Reply