Það er vel við hæfi að nota þessa síðustu daga sumarsins í að grilla eins og enginn sé morgundagurinn. Þessi réttur, sem að hluta til kemur frá skemmtilegu matarbloggi sem kallast The Kitchn sló allhressilega í gegn á mínu heimili enda hrein dásemd. Uppskriftin er einföld og fljótleg og jafnvel flatbrauðið sem er án gers er ofureinfalt í gerð. Kofta, tzatziki sósan og flatbrauðið passa svo ótrúlega vel saman að úr verður veisla fyrir bragðlaukana. Á mínu heimili hef ég verið beðin um að hafa þennan rétt á hverjum degi og væri alveg til í það.
Grillað Kofta með tzatziki sósu og flatbrauði
Fyrir 4
Tzatziki sósa
1 agúrka
1 ½ tsk sjávarsalt
2 sítrónur
½ hvítlauksrif
350 g grísk jógúrt
lítið búnt ferskt dill*
lítið búnt fersk mynta*
2 msk ólífuolía
½ tsk Pipar
- Rífið agúrkuna í gegnum stóru götin á rifjárni eða saxið smátt. Setjið í skál og blandið ½ tsk af salti saman við. Látið bíða í 15 mínútur (…ish).
- Fínrífið 1 msk af sítrónuberki og setjið í skál. Kreystið safann úr hálfri sítrónu í skálina.
- Fínrífið hvítlaukinn og bætið saman við sítrónusafann og börkinn. Saxið dill og myntu smátt og bætið út í skálina. Bætið grískri jógúrt, olíu, 1 tsk af salti og ½ tsk af pipar saman við.
- Kreistið safann úr agúrkunni og bætið henni saman við jógúrtblönduna. Geymið í kæli þar til maturinn er tilbúinn.
*Ferskar kryddjurtir á Íslandi kosta oft ansi mikið, þar að segja í þeim tilfellum sem þær eru til í verslunum. Ég hef gert þessa sósu án þess að nota dill og myntu eða notað bara annaðhvort, bæði gengur. Einnig er sniðugt að geyma smá afgang af myntunni sem notuð er í uppskriftina af Kofta svo þið þurfið ekki að kaupa annan pakka fyrir sósuna.
Grillað Kofta
½ laukur
2 cm engifer
2 hvítlauksrif
1 lítið búnt fersk steinselja
1 búnt fersk mynta
600 g nauta eða lambahakk
1 ½ tsk sjávarsalt
1 msk cumin (ath. ekki kúmin)
1 tsk kóríanderkrydd
½ tsk kanill
½ tsk negull
hnífsoddur rauðar piparflögur
- Látið grillpinna í vatn í um 20-30 mínútur til að koma í veg fyrir að þeir brenni (ef þið skoðið myndirnar vandlega þá sjáið þið að þetta er ekki styrkleiki minn. Semsagt ekki gera eins og ég!!!)
- Setjið lauk, engifer og hvítlauk saman í matvinnsluvél eða saxið smátt. Blandið því næst öllum hráefnunum vel saman í skál. Mótið hakkið í bollur eða hafið þær örlítið ílangar á grillpinnunum, það er kannski einfaldara að grilla þær ef þær eru aðeins ílangar. Setjið í ísskáp í um 20 mínútur (aftur ekki minn styrkleiki að bíða og á góðum degi ná þær max 10 mínútum. Gerið eins og ég!).
- Penslið grillteina með smá olíu og grillið bollurnar í 3-5 mínútur á hvorri hlið eða þar til þær hafa eldast alveg í gegn og eru með fallega dökkum röndum á einstaka stöðum.
Flatbrauð án gers
300 g hveiti
½ tsk sjávarsalt
50 g smjör
185 g mjólk
½ tsk olía
- Blandið smjöri og mjólk saman og hitið þar til smjörið er næstum bráðið.
- Bætið hveiti, salti, smjöri og mjólk saman við. Hnoðið saman. Geymið í skál með plastfilmu yfir í um 30 mínútur.
- Skiptið deiginu í 5-6 hluta og fletjið út, notið hveiti eftir þörfum. Gott að hafa brauðin í þynnri kantinum og ílöng.
- Steikið á olíusmurðri pönnu eða grillið. Vefjið elduðu brauðunum í viskastykki og geymið þar til þær eru bornar fram.
Leave a Reply