Heimsins besta kaka – norskur klassíker

Home / Heimsins besta kaka – norskur klassíker

Þessi kaka er að margra mati sú allra besta. Hún lætur kannski ekki mikið fyrir sér fara en látið ekki blekkjast hún bragðast ómótstæðilega. Kakan á rætur sínar að rekja til Noregs þar sem hún hefur verið bökuð í fjöldamörg ár og við hin ýmsu tilefni eins og brúðkaup, skírnaveislur, afmæli og já í raun flest þau tilefni sem kalla á köku. Ég hafði ekki bragðað þessa fyrr en nýlega og hún fær öll mín bestu meðmæli og er nú orðin ein af mínum uppáhalds.

kaka

Heimsins besta kaka
Botn
150 g smjör, mjúkt
125 g sykur
150 g hveiti, sigtað
1 tsk lyftiduft
5 eggjarauður
5 msk nýmjólk

Marengs
5 eggjahvítur
180 g sykur
100 g möndluflögur

Fylling
2 tsk vanilludropar
2 dl rjómi

  1. Hrærið smjöri og sykri vel saman þar til blandan er orðin létt og ljós. Bætið þá hveiti, lyftidufti, eggjarauðum og mjólk saman við. Hyljið bökunarform með smjörpappír og setjið deigið þar í.
  2. Gerið marengsinn með því að hræra saman eggjahvítum og sykri þar til marengsinn er orðinn alveg vel þéttur í sér í góðar 5-10 mínútur. Passið að hrærivélaskálin sé alveg hrein og þurr áður en eggjahvíturnar fara ofan í hana. Setjið marengsinn ofan á deigið og stráið svo möndluflögum yfir allt.
  3. Bakið í 175°c heitum ofni í um 40-50 mínútur. Kælið kökuna og takið úr forminu. Hrærið rjómann og vanillu saman, setjið yfir kökuna og skreytið með jarðaberjum.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.