Þessi pastaréttur er í svo ótrúlega miklu uppáhaldi enda koma hér til sögunnar gráðostur, perur og valhnetur hráefni sem var svo sannarlega ætlað að vera saman. Í þessari uppskrift nota ég fyllt fjögurra osta Ravioli frá RANA en það er einnig gott að prufa fyllt Ravioli með spínati og kotasælu frá RANA í þennan rétt. RANA býður upp á ferskt pasta eins og það gerist best og tekur aðeins 2 mínútur að verða “al dente”.
Ummmmmmmmm
Veisla fyrir bragðlaukana
Ravioli með perum, beikoni, valhnetum og gráðostasósu
Fyrir 2 manns
Styrkt færsla
1 poki (250g) 4 osta ravioli frá RANA
250 ml matreiðslurjómi
200 g Philadelphia rjómaostur
50-100 g gráðostur (eða t.d. piparost)
1-2 perur
8-10 sneiðar beikon
100 g valhnetur (eða pekanhnetur)
fersk steinselja
- Steikið beikonið þar til það er orðið stökkt og skerið í bita.
- Skerið perur í þunnar sneiðar.
- Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu.
- Gerið sósuna og setjið rjóma, rjómaost og smá af gráðostinum saman í pott og bræðið saman við vægan hita. Smakkið sósuna til með meiri gráðosti ef ykkur hugnast svo.
- Setjið pastað í skál ásamt perum og hellið sósunni saman við, magn eftir smekk.
- Bætið beikoni og hnetum saman við og blandið vel saman.
- Skiptið á diska og stráið ferskri steinselju og svörtum pipar yfir allt. Munið að njóta!
Leave a Reply