Hver elskar ekki nýbakaðar brauðbollur? Hér er á ferðinni uppsrift að brauðbollum sem ég hreinlega elska. Þær eru hollar og ótrúlega bragðgóðar og á mínu heimili er slegist um síðustu bolluna…..svo mikið kósý eitthvað!
Hollar haframjölsbollur
2 dl haframjöl
1 ½ dl sólkjarnafræ
1 ½ dl hörfræ
6 dl vatn
5 dl súrmjólk
1 (11.8 g) pakki þurrger
1 ½ tsk gróft salt
2 msk hunang (eða agavesýróp)
½ dl olía
2 egg
4 dl heilhveiti (meira eftir þörfum) * ATH. hér vantar augljóslega mikið hveiti..bætið þar til þetta líkist venjulegu deigi. Mun uppfæra hana fljótlega.
1/2 dl hveitiklíð
- Setjið haframjöl, fræinog vatn saman í pott og sjóðið í eina mínútu. Takið af hitanum og bætið mjólk, salti og hunangi, eggi og olíu saman við. Þegar blandan er orðin fingurvolg (37°c) bætið þá gerinu saman við. Hrærið því næst hveiti saman við og hnoðið vel.
- Látið deigið hefast á volgum stað í amk 1 klukkustund. Hnoðið og mótið um 40 bollur. Setjið þær á ofnplötu með smjörpappír og látið hefast í 15-20 mínútur.
- Penslið bollurnar með léttpískuðu eggi og stráið fræjum yfir. Setjið í 225°c heitan ofn og bakið í um 15 mínútur eða þar til bollurnar eru orðnar gylltar.
Leave a Reply