Ég hef sagt það áður og segi það aftur ég ELSKA rétti sem maður getur galdrað fram á núll einni og bragðast dásamlega. Hér er einn slíkur….já og enn eitt uppáhaldið. Það má leika sér með hráefnin og hér er ekkert heilagt. Frábær ísréttur í matarboðið eða kósýkvöld fjölskyldunnar.
Ísréttur með hindberjum og karmellusósu
1 – 1 1/2 l vanilluís
100 g hindber
karmellusósa
300 g grahams kex eða makkarónur
100 g smjör, brætt
- Látið smjörpappír í form.
- Myljið makkarónurnar niður (gott að nota matvinnsluvél) og blandið saman við smjörið. Takið um 50 g frá til að strá yfir ísinn í lokin en þrýstið hinu vel í formið.
- Leyfið ísnum aðeins að mýkjast og látið hann síðan yfir makkarónublönduna. Gott er að dreyfa úr honum með lítilli sleif.
- Dreifið karmellusósu yfir ísinn…ommmnooommmnommmm!
- Þrýstið berjunum vel ofan í ísinn og stráið jafnvel smá karmellusósu yfir þau. Ef þið viljið að þá getið þið hrært berin saman við ísinn þannig að það blandist lítillega saman.
- Látið að lokum afganginu af makkarónublöndunni sem þið tókuð frá yfir allt. Setjið filmu yfir formið og geymið í frysti í 3-5 klukkustundir áður en rétturinn er borinn fram og hans notið.
Leave a Reply