Innihaldslýsing

500 g lax (látið í frysti í sólahring)
100 g reyktur lax
5 msk ólífuolía
½-1 msk dijon sinnep
1-2 msk af sítrónusafa
1 skalottlaukur, saxaður
1 grænt epli, smátt skorið
½ agúrka, kjarnhreinsuð og smátt skorin
4 msk ferskar kryddjurtir, t.d. dill, oregano eða mynta
salt og pipt

Leiðbeiningar

1.Skerið laxinn í litla bita og látið í skál.
2.Í aðra skál setjið ólífuolíu, sinnep, sítrónusafa og saxaðar kryddjurtir. Smakkið til með salti og pipar.
3.Blandið nú öllu saman og skiptið niður á diska eða látið í skálar.
4.Berið fram með fersku salati og sítrónusneið.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.