Hér er á ferðinni sannkallaður veislumatur sem kallar á fá hráefni og stuttan tíma í undirbúning en bragðast eins og best gerist. Rétturinn kemur mjög skemmtilega á óvart og má segja að sé leynivopn lata kokksins og vís til að slá í gegn hjá viðstöddum.
Paprikukryddaður kjúklingur með spínati og hvítvínssósu
4 kjúklingabringur, t.d. bringur (eða úrbeinuð læri) frá Rose Poultry *
2 tsk paprikuduft
salt og pipar
10 msk smjör
hálft búnt timían, ferskt
6 hvítlauksrif, smátt söxuð
500 ml hvítvín
3-4 lúkur spínat, gróflega saxað
- Kryddið kjúklinginn með paprikukryddi, salti og pipar. Nuddið kryddinu vel inn í kjúklinginn.
- Bræðið 1 msk af smjöri í pönnu við meðalhita og bætið kjúklingabringunum út á. Steikið þar til kjúklingurinn er orðinn stökkur og gylltur á lit eða í um 3 mínútur. Snúið þá við og eldið í aðrar 3 mínútur.
- Bætið þá afganginum af smjöri, timíani og hvítlauk. Hrærið í blöndunni í 1-2 mínútur og bætið því næst hvítvíninu saman við. Leyfið að malla í um 20 mínútur, bætið við meira hvítvíni ef þörf er á því.
- Bætið að lokum spínati saman við. Saltið og piprið. Gangið síðan í skugga um að kjúklingurinn sé fulleldaður og berið fram með góðu meðlæti.
*styrkt færsla
Leave a Reply