Valgerður Gréta Guðmundsdóttir
Instagram: valgerdurgreta
75g bráðið smjör | |
1/2 bolli sykur | |
1/2 bolli púðursykur | |
2 egg | |
1 og 1/2 bolli hveiti | |
1 tsk lyftiduft | |
1 tsk sjávarsalt | |
1/2 bolli mjólk | |
1 bolli frosin bláber | |
1 tsk hveiti | |
- | |
Kanilmulningur: | |
30g bráðið smjör | |
4 msk hveiti | |
2/3 bolli púðursykur | |
1/2 tsk kanill | |
Öllu blandað saman í skál |
1. | Hitið ofninn í 175°C. Það eru kannski fáir sem eiga svona kökuform en það er vel hægt að nota bollakökuform í staðinn. Setjið form ofan í hvert hólf. |
2. | Setjið smjör, sykur og egg saman í skál og þeytið vel. Blandið hveiti, lyftidufti, og salti saman við. Að síðustu hrærið mjólkinni saman við. Veltið berjunum upp úr 1 tsk af hveiti og blandið varlega saman við með sleikju. |
3. | Fyllið formin til hálfs með deiginu. |
4. | Blandið öllu sem á að fara í mulninginn saman, hann á að líkjast grófri mylsnu. |
5. | Stráið mulningum jafnt á milli formanna og bakið í miðjum ofni í 25 mín. |
Valgerður Gréta Guðmundsdóttir
Instagram: valgerdurgreta
Leave a Reply