Það er alltaf einhver óútskýranlegur sjarmi í því að gæða sér á nýbökuðum skonsum og ekki er verra ef að uppskriftin er einföld og fljótleg eins og þessi hér. Á aðeins 30 mínútum eru þið búin að blanda, hnoða, baka og mögulega byrjuð að gæða ykkur á þessum himnesku skonsum – ekki slæmt það.
Í þessa uppskrift notaði ég brauðhveitið frá Kornax (í bláum pakkningum) en það er sérstaklega ætlað í brauðbakstur og pizzugerð og hefur reynst mér vel. Ég ber skonsurnar fram með rjómaosti og sultu en það er að sjálfsögðu smekksatriði.
Fallega marmarabrettið og viskustykkið á myndunum er úr verslunninni Snúran en þar má finna dásamlegar vörur fyrir heimilið á góðu verði – sjá nánar á www.snuran.is.
Nýbakaðar skonsur á 30 mínútum
Gerir um 10 stk.
80 g smjör, kalt
350 g Kornax brauðhveiti (í bláum pakkningum)
1 msk lyftiduft
4 msk sykur
1 egg
150 ml mjólk
- Blandið saman hveiti, lyftidufti og salti. Bætið smjörinu saman við og hnoðið vel (ef þið eigið matvinnsluvél er gott að blanda smjörinu þannig saman við þurrefnin). Bætið sykrinum saman við.
- Þeytið eggið með gaffli og takið 2 msk af egginu og blandið saman við mjólkina, restin af egginu er notað síðar til að pensla skonsurnar. Blandið mjólkinni því næst saman við þurrefnin og hnoðið saman. Rúllið deiginu í 30 cm lengju og skerið í þríhyrninga.
- Penslið skonsurnar með afganginum af þeytta egginu og stráið örlítið af sykri yfir hverja skonsu.
- Bakið við 220°c heitan ofn í um 15 mínútur eða þar til skonsurnar eru orðnar gylltar að lit.
Leave a Reply